Pjakkur er 2 ára Border Collie/Labrador blendingur sem kom inná gott heimili á Akureyri fyrir nokkrum mánuðum síðan í gegnum Dýrahjálp (http://www.dyrahjalp.is/)
Það kom fljótt í ljós að Pjakkur var lítið sem ekkert umhverfisvaninn, mjög stressaður og hræddur við ókunnuga og hin ýmsu hljóð, svo mikið að hann missti oft þvag. Hann æstist upp þegar hann sá aðra hunda, skalf af hræðslu þegar ókunnugur kom í heimsókn og gelti á fólk úti ásamt öllu því sem honum þótti skrítið og nýtt.
Þegar ég kom á heimilið og hitti Pjakk í fyrsta skiptð sá ég hversu mikið óöryggið og hræðslan var. Það þrufti þónokkurn tíma til þess að fá hann til að þefa af mér og borða nammi úr lófa mínum. Ég hundsaði hann alveg til að byrja með og það lagði góðann grunn að hann gæti slakað á nálægt mér. Um leið og ég prufaði að labba í átt að honum forðaði hann sér og var ein taugahrúga. Þegar hundur er í þessu hugarástandi líður honum mjög illa.
Ég gaf eigendunum ráð til þess að koma Pjakk í meira jafnvægi, fá hann til að slaka meira á og venja hann við það sem hann var hræddur við, ég ráðlagði þeim umfangsmikla umhverfisþjálfun úti þar sem hann fengi að upplifa allskyns hljóð og sjá allskyns fólk og hluti. Ég lagði áheirslu á að ókunnugir hundsuðu hann og hann fengi að koma til þeirra og þefa og yrði annars hundsaður.
Mikið er búið að vinna með Pjakk og í dag hefur margt breyst. Eigendur hans eru rosalega viljug og dugleg að laga það sem þarf að laga og hann er mjög heppin að hafa lent hjá þeim. Eigendurnir fengu Matta til þess að hjálpa við að umhverfisþjálfa og Matti fór reglulega með hann niður í bæ og lét hann mæta allskyns fólki og heyra hin ýmsu hljóð og ganga með öðrum hundum. Það hefur skilað miklum árangri og gaman að sjá muninn á honum eins og hann var og eins og hann er í dag. Hann er enn smá smeykur, en ekki nærri því eins mikið og fyrst.
Sómi einn af mínum hundum hefur hjálpað mikið til, hann er vanur öllu og mjög yfirvegaður hundur. Hann hefur góð áhrif á Pjakk og labbar Matti þessvegna oft með þá saman og þá slakar Pjakkur vel á. Sómi er heldur ekki að kippa sér upp við neitt nýtt og því hefur það góð áhrif á Pjakk.
Einnig hefur Pjakkur verið að mæta á skipulagða hundahittinga sem ég er með. Fyrst var Pjakkur mjög óöruggur og gelti mikið kringum aðra hunda en það er allt önnur saga í dag. Í dag kippir Pjakkur sér sjaldan upp við ef hundar eru eða láta illa nálægt honum. Þannig að umgengni við aðra hunda er allt önnur. Á hundasvæði er Pjakkur til fyrirmyndar og þá sér maður ánægðan yfirvegaðan hund sem elskar að hlaupa og kanna umhverfið. Hann og Sómi eru miklir vinir og það er gaman að sjá þá saman.
Núna erum við að snúa okkur að næsta lið í endurhæfingu Pjakks. Það er óöryggi og gelt í og nálægt húsinu og gelt að fólki sem labbar þar nálægt. Við tókum góða æfingu í gær og í dag og gekk það vonum framar og Pjakkur er fljótur að læra. Nú er bara að endurtaka æfingarnar því endurtekningar eru mikilvægar í þónokkurn tíma til að fá Pjakk í rétta hegðun.
Myndir koma fljótlega og frekari uppfærsla af endurhæfingu Pjakks.
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.