Saturday, August 8, 2009

Píla

Píla kom til mín þann 6.ágúst. Hún er ársgömul labrador/border collie blanda og var auglýst inn á Dýrahjálp (http://www.dyrahjalp.is/) Eigendur hennar gátu ekki átt hana lengur vegna óviðráðanlegra aðstæðna og ég ákvað að bjóða mig fram sem fósturheimili.


Markmið mitt með Pílu er að þjálfa hana vel upp, veita henni það sem hún þarfnast og kenna henni almenna hlýðni. Þá verður hún betur í stakk búin að fara inn á framtíðarheimili. Mig langar að fjalla aðeins um það sem ég mun bralla með henni og hvernig ég kenni henni reglurnar mínar.


Nú er hún búin að vera í 2 daga og aðlagast vel. Hún og Sómi eru góðir vinir, á sama aldri líka og því fínustu leikfélagar. Það sem ég vil laga næstu vikurnar hjá Pílu:


Hún er ung og orkumikil og því stutt í æsing og ærslagang, ég ætla mér að gefa henni góða daglega hreyfingu og kenna henni svo yfirvegun því hundum líður betur yfirveguðum en æstum og öll þjálfun gengur betur þannig.


Hún flaðrar og hoppar upp með framfæturnar á borð og annað, með því að hreyfa hana verður hún rólegri fyrir vikið og ég ætla mér að vera dugleg að leiðrétta hana með flaðrið.


Henni líður ekki allt of vel í búrinu sínu sem hún hefur átt frá upphafi, en ég kýs að láta hunda sofa í búri á nóttunni, sérstaklega þegar ég er með unga hunda og fleiri en einn. Hef lent í því að vakna um hánótt og bara leikur og gaman hjá mínum haha:)

Því er ég strax farin að vinna í því að breyta hennar hugsun varðandi búrið, ég vil að hún sjái það sem bæli og öryggisstað en ekki stað sem hún er föst á.

Þegar hún er vel hreyfð gef ég henni skipun að fara í búrið sem ég hef nálægt mér til að byrja með og bið hana að leggjast þar en loka ekki hurðinni! Ég hef trú á því að það sé mikilvægt þegar maður er að búrvenja að loka ekki búrhurðinni á annað en yfirvegaðan og rólegan hug. Því verð ég að æfa það hjá Pílu. Þegar hún hefur komið sér vel fyrir í búrinu og slakar á þá er gott að loka hurðinni og opna svo aftur eftir smá tíma.


Hún er svolítið vælin sem gæti verið vegna þess að hún er uppfull af orku eða vegna þess að hún er einfaldlega búin að venja sig á það. Hreyfing og að hundsa virkar vel á þetta.


Hún togar svolítið í göngutúrum. Oft þegar ég fæ hunda sem toga þá finnst mér stundum eins og þeir séu orðnir ónæmir fyrir þrýstingnum á hálsinn og láta sér fátt um finnast þó þrengist að. Stundum ná þeir fljótt hælgöngunni en ég ákvað í Pílu tilfelli að kynna hana fyrir Halti taum, sem er gangtaumur sem venur hundinn mjög fljótt við hæl án nokkurns þrýsting eða hættu á skemmdum í hálsi. Oft nota ég Halti bara tímabundið meðan hundurinn er að venjast við að ganga við hæl og þarf hann svo ekki lengur. Píla var 10 mínotur að venjast og þetta gekk allt vonum framar. Fékk nammi, hrós og lausahlaup í verðlaun eftir á.


Hún er pínu óumhverfisvanin, en er fljót að aðlagast. Getur líka verið smá stress í henni að koma svona á nýjan stað, en ég fór með hana niður í bæ til að láta hana sjá fullt af fólki og hlutum. Henni fannst margt skrítið en jafnaði sig fljótt. Hún hundsaði að mestu hunda og annað fólk sem er mjög gott.

Ég fór með hana uppá Dýraspítala og sýndi henni kött þar sem er hundvaninn og það gekk mjög vel. Mér finnst rosa gott að prufa hundana við öllu þegar ég fæ þá í hendurnar til að sjá hvað þarf að vinna í.


Hún er svolítið frek á dótið sitt en eftir korters æfingu úti í garði var hún farin að fatta mig og sleppti dótinu og fékk hrós fyrir. Smá æfing í viðbót og þetta verður glimrandi hjá henni.


Þetta er það sem mér dettur í hug í bili, Píla er mjög geðgóður hundur og ekki til illt í henni. Hún er smá klaufi og vantar meiri visku og þjálfun. Þetta kemur allt með tíma, jákvæðni og þolinmæði.


Mynd: (Píla skilur ekkert af hverju hún má ekki koma úr garðinum til mín:)

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.