Saturday, August 8, 2009

Pjakkur -3-

Matti er búinn að vera mjög duglegur með Pjakk síðustu daga.

Ein af "fóbíum" Pjakks var að ganga yfir holræsislok. Í upphafi fékkst hann ekki til þess. Í endurhæfingu eins og þessari er markmiðið að kenna hundinum að finnast hlutir eins og þessir bara sjálfsagt mál. Matti gerði því nokkrar æfingar með Pjakk samhliða prógraminu sem hann er með hann í og Pjakkur er farin að hundsa meira og meira svona lok sem er góðs viti, hann er snöggur að læra kallinn.
Matta finnst nauðsynlegt að fara með Pjakk fyrst á hundasvæðið og láta hann hlaupa og hreyfa sig áður en hann fer með hann niður í bæ, því þá er hann búinn að losa sig við alla auka orku og slakar því fljótt á kringum allt áreitið og sýnir forvitni sem er gott.

Í upphafi lokaðist Pjakkur af hræðslu niður í bæ og vildi ekki einu sinni nammi. Í dag er hann farinn að nota nefið meira og skoða sig um og þefa. Matti hefur verið duglegur að venja hann vel við hæl en í ferð eins og þessari hefur hann Pjakk í flexi taum og leyfir honum aðeins að ráfa um og skoða í kringum sig. Það gengur mjög vel.

Matti er líka duglegur að láta hann sitja og liggja í miðbænum og horfa á allt og alla, Matti nuddar hann jafnvel og þá slakar hann vel á, finnst mjög gott að fá smá nudd:)

Matti er mjög bjartsýnn á framhaldið, þetta þarf þónokkra vinnu í viðbót en það að endurhæfa mjög óöruggan hund getur tekið nokkra mánuði jafnvel meira. Pjakkur er orðinn rosalega fínn með öðrum hundum en fyst lét hann mjög illa með þeim. Nú getur Pjakkur hjálpað öðrum hundum að læra að umgangast aðra sem er frábært! Enda er mjög gott geðslagið í þessum hundi. Við erum mjög ánægð með hann og manni er farið að þykja mjög vænt um þennan hræðslupúka:)
meira seinna;)

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.