Saturday, October 31, 2009

Skvísa fær aðstoð

Þegar tekist er á við vandamál eins og þegar hundur á erfitt með að vera með öðrum hundum er gott að láta hann hitta aðra hunda. En þeir hundar sem hann hittir verða að vera stabílir og bregðast lítið sem ekkert við ef sá hundur sem er verið að hjálpa lætur illa. Einnig verður einhver að vera tilbúinn til að leiðrétta hundana á réttan hátt til að allt gangi vel. Þessvegna er gott að fá fagmann í þetta vegna þess að annars getur allt farið í háaloft.
Fyrst um sinn hitti Skvísa Sóma, og þar sem Sómi er hundur sem bregst ekkert við látum eða óöryggi þá var Skvísa fljót að taka hann í sátt og fóru þau meiraðsegja að leika sér. Hundar hjálpa öðrum hundum oft fljótar en menn. Markmiðið er að láta þau hittast nokkrum sinnum og bæta svo í hópinn. Æfa síðan Skvísu við aðrar aðstæður með öðrum hundum. En fyrst að auka öryggið og félagshæfni hennar og þannig fá hana til að hætta að bregðast illa við þegar hún hittir aðra hunda. Segi meira frá síðar...

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.