Friday, October 2, 2009

Úlfur


Úlfur er 6 mánaða íslenskur/bc blendingur sem átti að aflífa vegna flutninga en ég tók hann heim.
Hann var hjá mér í nokkrar vikur, mikill gleðipinni. Hann er rosalega hlýðinn og þæginlegur, geltir lítið og rosa fínn með öðrum hundum. Hann fór með mér í eina hundamætingaræfingu og stóð sig vel. Hann tengdi æsing við fólk og snertingu þannig að ég vandi hann aðseins á að vera rólegan kringum fólk og setjast fyrir klapp en hann vill allt fyrir mann gera. Sómi og Úlfur urðu strax miklir vinir og léku sér klukkutímum saman útí garði. Ég byrjaði aðeins að búrvenja Úlf og gekk það mjög vel. Þegar ég er með marga hunda verð ég að búrvenja sérstaklega þá yngri annars er bara partý allar nætur:) En ég passa að búr sé jákvætt og að hundarnir líti á það sem bæli sitt og öryggisstað. Ég vandi Úlf við hjól og honum fannst mjög gaman að hjóla með mér og fórum við líka í margar fjallaferðir. Mjög efnilegur hvolpur og ég sá strax að hann myndi henta vel á heimili með börnum því hann er mjög blíðlindur og geðgóður við bæði dýr og menn.
Núna er Úlfur í „prufu“ hjá frábærri fjölskyldu sem eru dugleg að hreyfa hann og kenna honum allskyns hlýðni. Hann vekur líka mikla lukku hjá krökkunum. Það hefur gengið vel og ég vona að þau vilji taka hann að sér. Mér finnst gott að setja hund í prufu í viku til tvær vegna þess að þá eru meiri líkur á að hundurinn sé á framtíðarheimili þegar fólk hefur ákveðið eftir þennan tíma að taka hundinn. Held að ég fái endanlegt svar eftir helgina:) Vona það besta

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.