Saturday, December 19, 2009

Markmiðið á næstunni.

Það hefur verið mikið um það að fólk þurfi hjálp við að venja hundana sína við aðra hunda. Það er alveg eðlilegt, það geta allir hundar orðið erfiðir og andfélagslegir við aðra hunda. Sumir eru líka yfirráðasamir frá náttúrunnar hendi. Það að eiga hund sem getur verið kringum alla hunda er vinna og það þarf að halda svoleiðis hundi við svo hann "ryðgi" ekki.

Skvísa sem hefur verið í smá prógrami sýnir mikla framför. Hún er ekki eins vör um sig þegar hundur nálgast heldur komin með sjálfstraust til að þefa og leyfa hinum hundum að þefa af sér. Það mun taka tíma og meiri æfingu áður en hún verður orðin alveg góð með öðrum hundum, hún gæti samt dottið í gamla gírinn en það er á ábyrgð eigandans að hjálpa henni að gleyma honum.

Nú erum við með annan hund sem hegðar sér eins, hann er jafnvel ákafari í að rjúka í aðra hunda vegna hræðslu, ef hundur nálgast hann urrar hann (Hann heitir Svali sem við ætlum að hjálpa)og ef ókunnugi hundurinn kemur nær stekkur Svali til og glefsar. Þetta ætlum við að hjálpa honum með. Það tekur tíma og vinnu, sumir daga munu ganga vel aðra daga kemur kannski bakslag, en með hverjum tíma sér maður árangur.
Markmiðið er að koma svo Skvísu og Svala saman til að leika. Það er ekki hægt alveg strax, Svali þarf smá prógram áður og æfingu. Það er mjög gefandi og skemmtilegt að sjá áður andfélagslegan hund sem var hræddur og skalf kringum aðra hunda leika sér við fullt af hundum, og vera hundur eins og hundur á að vera:)

Vonandi hafið þið það gott um hátíðarnar og munið að gefa hundinum ykkar góða jólagjöf, eins og góðan göngutúr, lausahlaup á öruggu svæði eða eitthvað þessháttar sem gleður hann sem hund:)

kveðja

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.