Saturday, January 30, 2010

Janúar - febrúar

Það er margt skemmtilegt búið að gerast síðustu vikur. Hundarnir sem ég hef verið með í sérmeðferðum hafa sýnt mikla framför og geta núna umgengist aðra hunda án erfiðleika. Mjög gaman að sjá svona árangur. Sómi minn hefur unnið mikið og gott verk, stundum hjálpa hundar öðrum hundum fljótar og betur en menn geta gert.

Það er búið að vera margt í gangi eins og námskeið, sérmeðferðir og hittingar og um að gera að halda því áfram, hundum fer ört fjölgandi og æ fleiri leita sér hjálpar með hundinn sinn sem er flott mál! Um að gera að fá aðstoð og þannig fá það besta útúr hundinum sínum.

Framundan eru miklar framkvæmdir stórra drauma! Það er allt hægt ef maður vill og vinnur að því.

Meira um verkefnin framundan í næstu færslu.

kveðja

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.