( Hægt er að skrá sig á http://www.hundatjalfun.is/ og fá reglulega sendan frían fróðleik)
Góðan dag kæru vinir.
Það er búið að vera fallegt vetrarveður svona rétt áður en vorið dettur inn og hérna fyrir norðan er snjónum búið að kyngja niður, fullkomið færi fyrir skíðamenn í fjallinu.
En ég ætla ekki að tala um skíði, heldur langar mig að tala aðeins um göngutúrana sem við tökum hundana okkar í.
Þegar við erum í göngutúr, eigum við það oft til að horfa mestmegnis niður á við, sjáum skóna okkar í takt þegar við erum að ganga og störum í malbikið, mölina, grasið eða snjóinn. Í göngunni erum við að hugsa um daginn í gær eða daginn á morgun, eða hvað sé framundan í dag, við höfum áhyggjur af ógreiddum reikningum og okkur finnst við kannski frekar eiga að vera að gera eitthvað annað en að vera úti á labbinu eins og að laga til eða versla það sem vantar í ísskápinn.
Hvernig væri það að venja sig á að þegar maður fer með hundinn í göngu, hvort sem það er niður í miðbæ eða utar þar maður kemst í meiri náttúru, að líta aðeins upp, anda djúpt og horfa á allt það fallega í umhverfinu. Það getur verið tré, fallegt hús, fjöllin, sjórinn, krakkar að leika sér eða hvað sem er. Njóta þess að horfa á þessa fegurð og láta hugann slaka á og hugsa hvað er í gangi hér og nú. Þetta er mjög góð æfing til þess að kyrra hugann og hlaða batteríin. Ef maður gerir þetta reglulega verður þetta að góðum vana. Hundurinn er með þér í þessu, finnur þig slaka betur á, gleðst með þér yfir fegurðinni og nýtur þess að vera til hér og nú.
Það er margt sem við getum lært af hundinum okkar, og eitt af því er að njóta umhverfisins og láta okkur líða vel í þeirri stund sem er að líða. Einblína ekki of mikið á það sem liðið er og vera stöðugt að hugsa til framtíðar. Líða vel í þeirri stund sem skiptir mestu máli. Núna.
Með góðri kveðju
Heiðrún Villa
http://www.hundatjalfun.is/
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.