Góðan dag gott fólk
Ég hef mikla trú á því að hundar eru komnir til okkar til að kenna okkur ýmsa hluti. Einn af þeim hlutum sem þeir geta kennt okkur er að læra að sýna yfirvegun í krefjandi og stressandi aðstæðum. Úti í hinni viltri náttúru stjórnast flokkur úlfa eða villihunda af foringja sem sér um að taka ákvarðanirnar og að vernda flokkinn. Sá foringi er ákveðinn með sínar reglur og stendur við þær, en leiðréttir ekki með því að missa stjórn á skapi sínu. Hann sýnir ákveðni en yfirvegun og þess vegna virða og treysta meðlimir flokksins honum sem foringja.
Þrátt fyrir að hundar séu farnir að alast upp með manninum breytir það ekki þeirra eðli. Þeir þurfa að hafa foringja í sínum flokki og vilja hafa einhvern sem þeir treysta og virða. Ef manneskjurnar sem hundurinn býr með eru ekki í jafnvægi, og missa stjórn á skapi sínu við hundinn er líklegra að hann reyni að stjórna ákveðnum aðstæðum sjálfur, í stað þess að láta manneskjuna um það. Einnig geta hundar alveg hlýtt manneskjum sem nota öskur og ógnir á hundinn en er ekki betra að hundurinn hlýði vegna þess að hann treystir manni og virðir, ekki vegna þess að hann er hræddur við mann?
Á mínum 12 ára hundaþjálfunarferli hef ég séð margar breytingar verða einungis vegna þess að eigandi hundsins fór að temja sér yfirvegun í þeim aðstæðum sem hann vildi að hundurinn hagaði sér betur. Í stað þess að ýkja upp aðstæðurnar fyrir hundinn þá róaði manneskjan aðstæðurnar niður með þvi að vera róleg sjálf og þá gekk allt miklu betur og hundurinn fór að treysta manneskjunni að sjá um aðstæðurnar og gat slakað á í þeim. Trúið mér þetta krefst oft æfingar, ég hef alveg reynslu af því sjálf í gamla daga áður en ég fór að læra þá tækni sem ég kann í dag að skamma hundinn minn og gera þannig aðstæðurnar miklu verri. Það frábæra finnst mér að þegar ég fór að ná yfirvegun með hundunum mínum þá fór ég að ná yfirvegun í mörgum óvæntum aðstæðum í lífinu. Eitt af fjölmörgum dæmum um það var þegar ég lendi eitt sinn næstum því í árekstri. Jeppinn sem ég var á rann verulega til á veginum og stefndi á nokkra bíla. Venjulega hefði ég frosið eða misst mig í einhverju óðagoti en vegna þess að ég var búin að venja mig á að taka stressandi aðstæðum með yfirvegun gat ég verið alveg róleg og beygt frá á réttum tíma til að forðast áreksturinn. Þetta þakka ég hundunum mínum fyrir.
Stundum er gott að fá fagmann með sér til að læra að tækla ýmsar aðstæður sem er að valda stressi. Þá sér fólk hvað er rétt að gera og heldur sig við það og fær flottan árangur.
Ég er tilbúin að hjálpa hverjum sem er við hvað sem er varðandi hundinn því ég er komin hingað ekki bara til að hjálpa fólki með hundana sína, heldur að hjálpa hundunum að kenna fólkinu það sem þeir eru komnir til að kennaJ
Ég verð í Reykjavík 28.-30. maí og kem svo aftur í júní. Aðra áfangastaði er ég að skipuleggja læt vita um leið og ég hef fest þá niður.
Ég vona að þið eigið góða helgi og endilega prufið þið að æfa þær aðstæður með hundinum sem hafa verið stressandi með ró og yfirvegun.
Góða helgi
Heiðrún Villa
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.