Góðan dag gott hundafólk.
Mig langar aðeins að fjalla um aðferðir við hundaþjálfun í dag. Eins og í svo mörgu eru til fjölmargar aðferðir við að þjálfa upp hund. Einnig eru til margar aðferðir við að laga hegðunarvandamál hjá hundum. Í gegnum tíðina hef ég haft mikla ástríðu af erfiðum hegðunarvandamálum í hundum og lesið mér mikið til og lært mikið erlendis. Ég hef skoðað allar aðferðir sem ég hef rekist á og margar þeirra hef ég kafað djúpt í til að skilja betur og læra betur. Mér finnst leitt þegar fólk tekur sig til og tekur eina ákveðna aðferð fyrir og útskúfar henni vegna einhvers sem gerði mistök með hana einhverstaðar eða vegna þess að það hefur ekki kynnt sér aðferðina til hlýtar. Telur sig hafa bestu aðferðina á alla hunda. Ég hef rekist svolítið á þetta gegnum tíðina og þetta hefur fengið mig til að hugsa.
Er einhver aðferð best?
Svar mitt og mitt álit við þeirri spurningu er einfaldlega nei.
Það er engin aðferð best. Er það ekki í svo mörgu?
Það fer algerlega eftir hundi og eiganda hvaða aðferð er árangursríkust. Hundar eru misjafnir og þurfa misjafna nálgun sérstaklega þegar laga þarf hegðunarvanamál, þó að nálgunin eigi alltaf að vera jákvæð.Þessvegna hef ég lært allar þessar aðferðir. Til þess að nota allt það góða úr þeim öllum saman í áhrifaríka ráðgjöf fyrir hvern og einn. Persónulega ráðgjöf þar sem hver hundur er metinn eins og hann er og ráðleggingarnar ákveðnar eftir því. Ég ráðlegg fólki alltaf að læra eins mikið og það kemst í og fara á eins mörg námskeið og hægt er, og nota síðan það sem það finnst virka fyrir sig.
Það er þó eitt sem ég tel skipta öllu máli í sambandi við hundaþjálfun. Það þarf aldrei að takast á við vandann með ofbeldi eða ógnun við hundinn. Í flestum tilfellum þarf ekki einu sinni að koma við hann til að laga erfitt hegðunarvandamál. Jákvæð styrking og styrking leiðtogahlutverksins er það sem mér finnst hafa virkað fyrir mig og þá fjölmörgu sem ég hef aðstoðað.
Hundarnir eru hér til að kenna okkur jákvæðni, yfirvegun og hreinskilni. Þeir eru hérna til að þroska okkur. Látum þá minna okkur á alla þá yndislegu hluti sem við eigum til með að gleyma að horfa á.
Kær kveðja
Heiðrún Villa
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.