Þegar börn eru á heimilinu horfa þau á hvernig foreldrarnir umgangast hundinn og læra og herma eftir þeim, því er mikilvægt að vera góð fyrirmynd og kenna börnum rétta umgengni við hunda og kenna þeim að sýna hundum virðingu og skilning. Foreldrar þurfa að skilja að ung börn eiga ekki að vera í ábyrgðarhlutverki þegar kemur að umönnun og þjálfun hundsins heldur er það hlutverk foreldranna, en gott er að láta börnin hjálpa til við marga hluti sem við kemur hundinum eins og til dæmis að taka til matinn, koma með í göngutúra, leika við hundinn svo eitthvað sé nefnt. Það kennir barni ábyrgð og styrkir sambandið milli barnsins og hundsins.
Börn eiga að vera framlenging foreldra sinna þegar kemur að þjálfun og hlýðni hjá hundinum. Þar sem hundar eiga það til að hlýða börnum minna þurfa foreldrarnir að vera til staðar þegar barn segir hundinum skipun eins og til dæmis að setjast eða fara frá. Með því að stíga fram og sjá til þess að hundurinn hlýði þegar barn biður hann um eitthvað lærir hundurinn að sýna barninu virðingu og fara eftir óskum þess, vegna þess að hann veit að foreldrið sér til þess að hundurinn geri það sem barnið biður um. Óskir barnsins mega þó ekki vera óraunhæfar heldur nota skal þær reglur sem settar hafa verið fyrir hundinn og allir eru sammála um, og hvet ég alla til að nota yfirvegun og jákvæðni í þjálfun hundsins og kenna barninu sínu það sama. Það er mjög gefandi og þroskandi fyrir barn að alast upp með hundi en barnið verður að virða hundinn og læra að hundum finnst ekki alltaf gott það sem mannfólkinu finnst gott.
Tökum sem dæmi það að faðma hund. Það að faðma einhvern er merki um væntumþykju hjá okkur mannfólkinu og okkur finnst flestum gott að fá faðmlag. Annað er þó á könnunni hjá hundum. Hundum finnst í lang flestum tilfellum alls ekkert þæginlegt að láta faðma sig. Sumir þola það alveg, gera ekki neitt en það þýðir samt ekki að þeim finnist það þæginlegt. Flestir hundar sýna einhver stressmerki þegar þeir eru faðmaðir en þessi merki fara yfirleitt framhjá fólki sem ekki þekkja nægilega vel inn á atferli hundanna sinna. Sumir hundar eru vanir því að láta nánustu faðma sig en láta svo illa þegar einhver ekki eins kunnugur ætlar að gera það og þá geta komið upp mjög neikvæðar hegðanir hjá hundinum. Eitt af því varasamasta fyrir barn er að alast upp með hundi sem það má gera ýmislegt við án þess að fá viðbrögð eins og til dæmis að kyssa hann og knúsa og ætlar svo að gera það sama við anna hund sem þekkir barnið ekki eins vel, þó að þetta sé hundur ömmunnar eða frændans, þá er alltaf hætta á að hundur taki svona hegðun illa frá þeim sem hann þekkir ekki nægilega vel og býr ekki með. Því er mikilvægt að kenna börnum að virða það að hundar vilja ekki láta knúsa sig né kyssa í framan, að það sé hættulegt að gera það við ókunnuga hunda að vaða aldrei í hunda sem þau þekkja ekki. Gott er að kenna börnum hvað hundum finnst virkilega skemmtilegt, eins og til dæmis að fara í göngutúr, fá klór á bringuna, fá smá hundanammi eða elta bolta. Að kenna börnum að leika rétt við hunda er skynsamlegt og fyrirbyggir misskilning milli barna og hunda og kemur í veg fyrir neikvæða hegðun frá hundinum, sem er oftast bara að biðja um að vera látinn í friði. Sumir hundar eru mjög viðkvæmir og stressaðir við svona aðstæður og geta vanið sig á að urra og glefsa en taka þarf þannig hegðun mjög alvarlega.
Með þessari grein fylgja video, sýnidæmi á ensku þar sem sýnd eru stressmerki hjá hundi sem er faðmaður af barni annarsvegar og þegar hundur er kysstur.
Horfðu á video um faðmlagið hér
Ég hvet alla hundaeigendur sem eru með börn inn á heimilinu að vera góð fyrirmynd þegar kemur að uppeldi og þjálfun hundsins og kenna þeim rétta umgengni bæði við hundinn á heimilinu sem og ókunnuga hunda
Með bestu kveðju
Heiðrún Villa
www.hundatjalfun.is
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.