Hérna kemur smá saga.
Ég hitti hjón í Bretlandi fyrir ekki svo löngu síðan sem þurftu hjálp með hundinn sinn, fallega tík blöndu af Labrador og German Pointer. Hundurinn var erfiður í göngu vegna þess að hann fór á eftir hverjum einasta bíl sem keyrði framhjá, rykkti í tauminn og reyndi að stökkva á eftir bílnum, eigendum sínum skiljanlega til mikilla ama.
Hjónin voru ráðalaus, voru farin að kvíða að fara með hundinn í göngu og vissu ekki hvernig hægt væri að laga þetta.
Það allra fyrsta sem ég benti þeim á, er hversu stór partur við erum af lífi hundsins okkar og hvernig hann les í okkur, finnur vel hvernig okkur líður hverja einustu stund sem hann er nálægt okkur. Þannig að ef fólkið fór að kvíða göngunni áður en það fór út fann hundurinn frá þeim veika orku og þannig treysti þeim ekki til þess að vera leiðtogar í göngunni. Úti fengu hjónin alltaf hnút í magann þegar bíll nálgaðst og hundurinn fann það beint í gegnum tauminn og stökk í átt að bílnum.
Það fyrsta sem þau þurftu að sigrast á, er að vera alltaf að hugsa um þetta slæma, því eins og maður hefur upplifað að þá bara gerist það!
Þess í stað bað ég þau að ímynda sér gönguna eins og þau vildu hafa hana og sjá fyrir sér að hundurinn myndi ganga rólega við hliðina á þeim meðan bíll færi framhjá. Ég bað þau að finna hjá sér sjálfstaust og trúa á að hundurinn þeirra gæti vel gengið rólega framhjá bílum.
Við röltum í smástund og hundurinn horfði mikið á bílana, tilbúinn að stökkva.
Allt í einu reisti konan axlirnar, andaði djúpt, gekk rösklega og sagði við mig „jæja, það er að koma bíll og hann skiptir engu máli, við erum bara að ganga hérna yfirveguð og að njóta náttúrunnar“
Og viti menn, hundurin fann það um leið og leit varla á bílinn! Rosalega gaman að sjá svipinn á konunni ,hún átti varla orð. Eins og ég segi þá er máttur hugans mikill.
Hundar þurfa leiðtoga, það er innprentað í þeirra DNA, þeir leita eftir yfirveguðum leiðtoga sem meðhöndlar erfiðar aðstæður með ró og yfirvegun. Þannig geta hundarnir slakað á og notið þess að vera til.
Tileinkaðu þér því yfirvegun kringum hundinn þinn og þakkaðu fyrir hann á hverjum degi, ef það eru einhver vandamál í gangi, sjáðu fyrir þér hundinn haga sér öðruvísi, ekki einblína á það slæma, hafðu trú á að hann geti þetta og það er aldrei að vita nema hann komi þér á óvart! :)
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.