Friday, October 16, 2009

Skvísa

Skvísa er mjög fallegur blendingur af Springer spaniel og Labrador. Eigandi hennar hafði samband við mig vegna hegðunarvanda sem hún er með. Málið er að hún höndlar illa aðra hunda og bregst alltaf við með urri og glefsi að þeim þegar þeir koma nálægt. Eftir að hafa hitt hana sá ég að hún er mjög óörugg kringum aðra hunda og hefur vanið sig á þessa hegðun því hún hefur komist upp með það og ekki kennt annað. Ég sá að það þyrfti smá tíma og vinnu til að ná þessu úr henni en eitthvað sem er vel hægt.

Fylgist með hvernig ég tækla þetta vandamál en fyrsti tíminn er eftir nokkra daga.

kveðja

No comments:

Post a Comment

Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.