Monday, July 16, 2012

Vertu með!

Vertu með þeim fjölmörgu hundaeigendum sem vilja auka árangur í þjálfun hundsins og skilja hann betur.

Meðlimasvæði Hundaþjálfun.is er sniðug lausn fyrir alla hundaeigendur sjá HÉR

Kveðja
Heiðrún Villa og Matthías Örn
Hundaþjálfun.is

Tuesday, June 26, 2012



Mikil reynsla og sérhæfing í erfiðum hegðunarvandamálum

Nokkur góð "leyndarmál" hundaþjálfunar sjá HÉR

Vertu með fjölda þeirra hundaeigenda sem langar að gera samband sitt við hundinn betra.

Hundaþjálfun.is


Sunday, August 14, 2011

Máttur hugans


Hérna kemur smá saga.


Ég hitti hjón í Bretlandi fyrir ekki svo löngu síðan sem þurftu hjálp með hundinn sinn, fallega tík blöndu af Labrador og German Pointer. Hundurinn var erfiður í göngu vegna þess að hann fór á eftir hverjum einasta bíl sem keyrði framhjá, rykkti í tauminn og reyndi að stökkva á eftir bílnum, eigendum sínum skiljanlega til mikilla ama.

Hjónin voru ráðalaus, voru farin að kvíða að fara með hundinn í göngu og vissu ekki hvernig hægt væri að laga þetta.

Það allra fyrsta sem ég benti þeim á, er hversu stór partur við erum af lífi hundsins okkar og hvernig hann les í okkur, finnur vel hvernig okkur líður hverja einustu stund sem hann er nálægt okkur. Þannig að ef fólkið fór að kvíða göngunni áður en það fór út fann hundurinn frá þeim veika orku og þannig treysti þeim ekki til þess að vera leiðtogar í göngunni. Úti fengu hjónin alltaf hnút í magann þegar bíll nálgaðst og hundurinn fann það beint í gegnum tauminn og stökk í átt að bílnum.

Það fyrsta sem þau þurftu að sigrast á, er að vera alltaf að hugsa um þetta slæma, því eins og maður hefur upplifað að þá bara gerist það! 
Þess í stað bað ég þau að ímynda sér gönguna eins og þau vildu hafa hana og sjá fyrir sér að hundurinn myndi ganga rólega við hliðina á þeim meðan bíll færi framhjá. Ég bað þau að finna hjá sér sjálfstaust og trúa á að hundurinn þeirra gæti vel gengið rólega framhjá bílum.

Við röltum í smástund og hundurinn horfði mikið á bílana, tilbúinn að stökkva.

Allt í einu reisti konan axlirnar, andaði djúpt, gekk rösklega og sagði við mig „jæja, það er að koma bíll og hann skiptir engu máli, við erum bara að ganga hérna yfirveguð og að njóta náttúrunnar“ 
Og viti menn, hundurin fann það um leið og leit varla á bílinn! Rosalega gaman að sjá svipinn á konunni ,hún átti varla orð. Eins og ég segi þá er máttur hugans mikill.

Hundar þurfa leiðtoga, það er innprentað í þeirra DNA, þeir leita eftir yfirveguðum leiðtoga sem meðhöndlar erfiðar aðstæður með ró og yfirvegun. Þannig geta hundarnir slakað á og notið þess að vera til.
Tileinkaðu þér því yfirvegun kringum hundinn þinn og þakkaðu fyrir hann á hverjum degi, ef það eru einhver vandamál í gangi, sjáðu fyrir þér hundinn haga sér öðruvísi, ekki einblína á það slæma, hafðu trú á að hann geti þetta og það er aldrei að vita nema hann komi þér á óvart! :)

Wednesday, June 29, 2011

Meðmæli - Þjónusta Hundaþjálfun.is



Heil og sæl


Þessi póstur er sendur til þeirra sem hafa fengið Heimaráðgjöf.
Markmið mitt með vinnu minni er að hjálpa fólki að skilja betur besta vin mannsins og bæta líf hundanna í okkar oft flókna samfélagi.


Ég yrði mjög þakklát ef þú gætir sett inn ummæli eða meðmæli varðandi þjónustuna sem ég býð uppá. Það gefur mér kost á að bæta mína þjónustu, sjá hvað er gott og hvað má betur fara þannig að endilega að segja sína skoðun. Ég er þakklát fyrir alla punkta því mitt markmið er að veita góða þjónustu og hjálpa eigendum og hundum.


Ummælin/meðmælin eru nafnlaus, koma ekki fram á þessari síðu. 


Gefin eru Ummæli/meðmæli með því að skrifa í boxið sem birtist þegar smellt er á "Comments" hér fyrir neðan, skrifa ummælin/meðmælin, velja "Anonymous" og smella á "Puplish"


Meðmælin munu ekki birtast hér, þau fara inn á lokaða svæðið mitt og set ég nokkur af þeim inn á Hundaþjálfun.is síðuna.


Með þakklæti
Heiðrún Villa
Hundaþjálfun.is

Tuesday, February 8, 2011

Börn og hundar

Vegna þess hversu vinsælt hundahald er orðið víða í heiminum er mikilvægt fyrir alla hundaeigendur að læra um atferli hunda og þjálfun, vegna þess að með því að taka að okkur hund, erum við að taka inn á heimilið dýr með allt aðrar þarfir og langanir en við. Til þess að sambúðin gangi vel þurfum við að taka tillit til þessara þarfa og langana alveg eins og við þurfum að taka tillit til ólíkra þarfa og langana hjá maka okkar en þannig verður til traust og virðing í sambandi.

Þegar börn eru á heimilinu horfa þau á hvernig foreldrarnir umgangast hundinn og læra og herma eftir þeim, því er mikilvægt að vera góð fyrirmynd og kenna börnum rétta umgengni við hunda og kenna þeim að sýna hundum virðingu og skilning. Foreldrar þurfa að skilja að ung börn eiga ekki að vera í ábyrgðarhlutverki þegar kemur að umönnun og þjálfun hundsins heldur er það hlutverk foreldranna, en gott er að láta börnin hjálpa til við marga hluti sem við kemur hundinum eins og til dæmis að taka til matinn, koma með í göngutúra, leika við hundinn svo eitthvað sé nefnt. Það kennir barni ábyrgð og styrkir sambandið milli barnsins og hundsins.

Börn eiga að vera framlenging foreldra sinna þegar kemur að þjálfun og hlýðni hjá hundinum. Þar sem hundar eiga það til að hlýða börnum minna þurfa foreldrarnir að vera til staðar þegar barn segir hundinum skipun eins og til dæmis að setjast eða fara frá. Með því að stíga fram og sjá til þess að hundurinn hlýði þegar barn biður hann um eitthvað lærir hundurinn að sýna barninu virðingu og fara eftir óskum þess, vegna þess að hann veit að foreldrið sér til þess að hundurinn geri það sem barnið biður um. Óskir barnsins mega þó ekki vera óraunhæfar heldur nota skal þær reglur sem settar hafa verið fyrir hundinn og allir eru sammála um, og hvet ég alla til að nota yfirvegun og jákvæðni í þjálfun hundsins og kenna barninu sínu það sama. Það er mjög gefandi og þroskandi fyrir barn að alast upp með hundi en barnið verður að virða hundinn og læra að hundum finnst ekki alltaf gott það sem mannfólkinu finnst gott.

Tökum sem dæmi það að faðma hund. Það að faðma einhvern er merki um væntumþykju hjá okkur mannfólkinu og okkur finnst flestum gott að fá faðmlag. Annað er þó á könnunni hjá hundum. Hundum finnst í lang flestum tilfellum alls ekkert þæginlegt að láta faðma sig. Sumir þola það alveg, gera ekki neitt en það þýðir samt ekki að þeim finnist það þæginlegt. Flestir hundar sýna einhver stressmerki þegar þeir eru faðmaðir en þessi merki fara yfirleitt framhjá fólki sem ekki þekkja nægilega vel inn á atferli hundanna sinna. Sumir hundar eru vanir því að láta nánustu faðma sig en láta svo illa þegar einhver ekki eins kunnugur ætlar að gera það og þá geta komið upp mjög neikvæðar hegðanir hjá hundinum. Eitt af því varasamasta fyrir barn er að alast upp með hundi sem það má gera ýmislegt við án þess að fá viðbrögð eins og til dæmis að kyssa hann og knúsa og ætlar svo að gera það sama við anna hund sem þekkir barnið ekki eins vel, þó að þetta sé hundur ömmunnar eða frændans, þá er alltaf hætta á að hundur taki svona hegðun illa frá þeim sem hann þekkir ekki nægilega vel og býr ekki með. Því er mikilvægt að kenna börnum að virða það að hundar vilja ekki láta knúsa sig né kyssa í framan, að það sé hættulegt að gera það við ókunnuga hunda að vaða aldrei í hunda sem þau þekkja ekki. Gott er að kenna börnum hvað hundum finnst virkilega skemmtilegt, eins og til dæmis að fara í göngutúr, fá klór á bringuna, fá smá hundanammi eða elta bolta. Að kenna börnum að leika rétt við hunda er skynsamlegt og fyrirbyggir misskilning milli barna og hunda og kemur í veg fyrir neikvæða hegðun frá hundinum, sem er oftast bara að biðja um að vera látinn í friði. Sumir hundar eru mjög viðkvæmir og stressaðir við svona aðstæður og geta vanið sig á að urra og glefsa en taka þarf þannig hegðun mjög alvarlega.

Með þessari grein fylgja video, sýnidæmi á ensku þar sem sýnd eru stressmerki hjá hundi sem er faðmaður af barni annarsvegar og þegar hundur er kysstur.

Horfðu á video um faðmlagið hér

Horfðu á video um kossa hér

Ég hvet alla hundaeigendur sem eru með börn inn á heimilinu að vera góð fyrirmynd þegar kemur að uppeldi og þjálfun hundsins og kenna þeim rétta umgengni bæði við hundinn á heimilinu sem og ókunnuga hunda

Með bestu kveðju

Heiðrún Villa
www.hundatjalfun.is

Thursday, November 11, 2010

Nóvember

Kæru hundavinir.

Dýrahjálp Íslands hefur aðstoðað fjölmörg dýr í heimilisleit.
Þau hafa unnið frábæra vinnu og eiga hrós skilið.

Ég hvet alla til að styrkja þau til að geta haldið starfseminni áfram og einnig að skoða
þau heimilislausu dýr sem eru á síðunni.

Bráðlega mun Dýrahjálp opna sölusíðu þar sem þau verða með jólakort og aðrar skemmtilegar vörur til sölu
og hvet ég alla að fylgjast með.

Bestu kveðjur í bili - framundan er uppfærð síða full af fróðleik

Heiðrún Villa
http://www.hundatjalfun.is/

Thursday, May 27, 2010

Góðan dag gott hundafólk.

Mig langar aðeins að fjalla um aðferðir við hundaþjálfun í dag. Eins og í svo mörgu eru til fjölmargar aðferðir við að þjálfa upp hund. Einnig eru til margar aðferðir við að laga hegðunarvandamál hjá hundum. Í gegnum tíðina hef ég haft mikla ástríðu af erfiðum hegðunarvandamálum í hundum og lesið mér mikið til og lært mikið erlendis. Ég hef skoðað allar aðferðir sem ég hef rekist á og margar þeirra hef ég kafað djúpt í til að skilja betur og læra betur. Mér finnst leitt þegar fólk tekur sig til og tekur eina ákveðna aðferð fyrir og útskúfar henni vegna einhvers sem gerði mistök með hana einhverstaðar eða vegna þess að það hefur ekki kynnt sér aðferðina til hlýtar. Telur sig hafa bestu aðferðina á alla hunda. Ég hef rekist svolítið á þetta gegnum tíðina og þetta hefur fengið mig til að hugsa.

Er einhver aðferð best?

Svar mitt og mitt álit við þeirri spurningu er einfaldlega nei.

Það er engin aðferð best. Er það ekki í svo mörgu?

Það fer algerlega eftir hundi og eiganda hvaða aðferð er árangursríkust. Hundar eru misjafnir og þurfa misjafna nálgun sérstaklega þegar laga þarf hegðunarvanamál, þó að nálgunin eigi alltaf að vera jákvæð.Þessvegna hef ég lært allar þessar aðferðir. Til þess að nota allt það góða úr þeim öllum saman í áhrifaríka ráðgjöf fyrir hvern og einn. Persónulega ráðgjöf þar sem hver hundur er metinn eins og hann er og ráðleggingarnar ákveðnar eftir því. Ég ráðlegg fólki alltaf að læra eins mikið og það kemst í og fara á eins mörg námskeið og hægt er, og nota síðan það sem það finnst virka fyrir sig.

Það er þó eitt sem ég tel skipta öllu máli í sambandi við hundaþjálfun. Það þarf aldrei að takast á við vandann með ofbeldi eða ógnun við hundinn. Í flestum tilfellum þarf ekki einu sinni að koma við hann til að laga erfitt hegðunarvandamál. Jákvæð styrking og styrking leiðtogahlutverksins er það sem mér finnst hafa virkað fyrir mig og þá fjölmörgu sem ég hef aðstoðað.
Hundarnir eru hér til að kenna okkur jákvæðni, yfirvegun og hreinskilni. Þeir eru hérna til að þroska okkur. Látum þá minna okkur á alla þá yndislegu hluti sem við eigum til með að gleyma að horfa á.

Kær kveðja
Heiðrún Villa