Hræðslan fer minnkandi hjá honum og er hann farinn að labba um bæinn með meira sjálfstraust en áður og hann er hægt og rólega að koma betur og betur úr skelinni sem er bara frábært mál.
Lykilatriði er að hreyfa hann vel áður en maður setur hann í aðstæður eins og að labba í miðbænum því þá nær hann að slaka betur á og heilinn fer síður í þennan hræðsluham.
Næst á dagskrá hjá okkur er að vinna betur í nánasta umhverfi hans, sem er rétt fyrir utan Akureyri, því hann á það til að gelta á bíla sem nálgast húsið hans og fólk sem röltir í kring. Það mun ég gera með að hreyfa hann vel, taka langan göngutúr um hverfið, hjóla eða setja hann á hlaupabrettið og reyna síðan að framkalla þau hljóð sem hann geltir á og leiðrétta þá hegðun, m.a. að fá einhvern til að keyra inn í innkeyrsluna, labba framhjá húsinu ofl.
Pjakkur er búinn að vera duglegur að hjálpa öðrum hundum sem eiga við einhvern vandamál að stríða. Sem dæmi má nefna að um daginn notuðum við hann til að aðstoða 2 chihuahua sem geltu á aðra hunda og stóð Pjakkur sig eins og hetja og gerði allt sem hann átti að gera, enda er hann mjög góður með öðrum hundum.
Meira síðar..
No comments:
Post a Comment
Skilja má meðmæli eftir hér fyrir neðan. Takk fyrir.